Hvað er júdó?
Júdó eða Jūdō (hin mjúka leið) er nútímaleg bardagaaðferð og bardaga íþrótt sem var þróuð og sköðuð af Jigoro Kano og byrjað var að iðka í febrúar 1882. Aðalsmerki þess er keppnis hlutinn, þar sem markmiðið er að kasta eða koma andstæðingi sínum í jörðina, festa hann eða gera hann óvirkan í jörðinni, eða láta hann gefast upp með þvi að læsa liðamótum hans eða með því að framkvæma hengingu. Högg og spörk og varnir gegn vopnum eru einnig í júdó en aðeins í Kata (fyrirfram ákveðnar æfingar eða form) og eru ekki leyfð í keppni eða frjálsum æfingum.
Heimspekin og síðar kennslufræðin sem þróuð voru í judo urðu kenslumódel fyrir aðrar nýjar bardagalistir sem þróuðust út frá koryu (hefðbundir skólar). Útbreiðsla júdó leiddi til þróunar á nýjum bardagaaðferðum svo sem sambo og Brazilan Jiu-Jitsu. Iðkenndur júdo eru kallaðið Judoka.
á rætur sínar að rekja til Japans, þróaðist úr ýmsum bardagalistum sem samuraijar og lénsherrar höfðu notað í hundruð ára. Þótt stór hluti Júdotækninnar sé komin úr bardagalistum, sem voru hannaðar til að meiða, limlesta eða drepa andstæðinginn í raunverulegum bardögum, hefur bardagatækninni verið breytt þannig að iðkendur geta æft og reynt þessa íþrótt á öruggan hátt án þess að meiða hvern annan. Ólíkt karate byggir tæknin í Júdo ekki á spörkum eða höggum af neinu tagi. Ólíkt kendo eru ekki notuð nein áhöld eða vopn í Júdo. Í Júdo eru einfaldlega tveir andstæðingar, sem með tökum sínum á júdobúningum hvors annars, nota styrk jafnvægis, afls og hreyfingar til að reyna að yfirbuga hvorn annan. Flóknara er það ekki. Í einfaldleikanum liggur engu að síður margslungin íþrótt sem kostar mikla áreynslu, tíma og úthald ásamt strangri líkamlegri og andlegri þjálfun.
Orðið Júdo er myndað af tveimur japönskum táknum sem þýða "mildur" og "leið". Í bókstaflegri merkingu þýðir Júdo því "milda leiðin". Þrátt fyrir að "milda leiðin" sé ekki auðsjáanleg fyrir byrjendur, sem horfir á fólk hent upp í loftið eða skellt í gólfið, er hér um að ræða mildari útfærslu af harðari bardagaíþróttum.
Júdo er í raun miklu meira en bara ástundun og nám í bardagatækni. Í heild sinni er Júdo yndislegt kerfi, sem byggir upp hvern og einn á líkamlegan, andlegan og siðferðislegan hátt. Júdo hefur sína eigin menningu, stjórnkerfi, arfleið, siði og hefðir. Ennfremur smitast gildi "mildu leiðarinnar" frá keppnisþjálfuninni inn í líf flestra iðkenda og hafa áhrif á fjölskyldu viðkomandi, vini, vinnufélaga og jafnvel ókunnuga. Júdo gefur sönnum iðkendum sínum lykil að siðareglum, lífsstíl og sýn á tilveruna.
Í dag skipta iðkendur Júdo milljónum og er án efa vinsælasta bardagaíþrótt heimsins. Aðeins fótbolti hefur á heimsvísu fleiri iðkendur. Alþjóðlega Júdosambandið (IJF) hefur flest þjóðlönd innan sinna vébanda af alþjóðlegum íþróttasamböndum. Í sumum löndum er IJF hluti af menntakerfum þeirra, iðkað í íþróttafélögum, í barnaskólum, unglingaskólum, sérskólum, trúarlegum eða þjóðlegum æfingamiðstöðvum og á mörgum öðrum stöðum vítt og breitt um heiminn. Milljónir hafa uppgötvað þessa mikilfenglegu og mannauðgandi íþrótt.
Júdo er öguð og krefjandi líkamleg þjálfun. Tækniæfingar hjálpa hverjum og einum til að byggja upp alhliða líkamlegan þrótt á fjölbreytilegan hátt; styrk, mýkt, liðleika, snerpu, afl, jafnvægi, sprengikraft og úthald. Sókna- og varnaræfingar þjálfa tímasetningar fyrir gagnárásir, samhæfingu hugs og handa og trú á eigin mátt. Iðkendur Júdo verða hraustari, stæltari og sneggri í gegnum æfingar sínar. En iðkendurnir öðlast ekki eingöngu aukna hreysti heldur eignast þeir hlutdeild í einstakri færni og tækni Júdoheimsins. En aðeins hlutdeild því Júdoheimurinn er stór. Sem dæmi læra iðkendur aðferðir til að fleygja með afli, nákvæmni og snerpu andstæðingum í gólfið. Þótt iðkendum Júdo sé oft kynntur fjöldi slíkra bragða ná flestir þeirra aðeins fullkomnu valdi á fáum þeirra og oftast er það nægilegt til að ná góðum árangri í keppni.
En fyrir utan líkamlegt atgervi og hreysti, sem iðkendur Júdo ávinna sér, þá læra þeir miklu meira. Þeir læra hvernig þeir geta stjórnað tilfinningum sínum, skapi og hvötum. Þeir læra um mikilvægi þrautseigju, virðingar, hollustu og aga. Iðkendur Júdo öðlast aukinn siðferðislegan þroska ásamt því að þjálfast í kurteisi og almennum mannasiðum. Þeir læra að yfirvinna hræðslu og sýna hugrekki undir álagi. Í gegnum keppni og daglegar æfingar læra þeir um réttmæti og sanngirni. Reynslan kennir þeim að kurteisi, hógværð og fleiri slík gildi borga sig og hjálpar þeim einnig í daglegu lífi.
Iðkendur Júdo öðlast einnig ákveðna félagslega færni og byggja upp gefandi samband, til lengri tíma litið, milli hvers annars. Tengsl og vinskapur milli iðkenda, sem hafa í gegnum súrt og sætt verið saman í æfingum og keppni í lengri tíma, er oft djúpur og endist stundum til lífstíðar. Í gegnum Júdo getur fólk þróað vinskap og átt samskipti nánast því hvar sem er. Það skiptir ekki máli hvaða þorp eða bæjarfélag þú heimsækir, þú ert alltaf velkomin í hvaða Júdoklúbb sem er. Júdo er því ekki eingöngu líkamleg athöfn, heldur alþjóðlegt tungumál sem er hafið yfir landamæri, menningarkima og tungumálaerfiðleika. Á sinn hátt tengir Júdó saman fólk, samfélög og þjóðir. Íþróttin hefur því ekki aðeins mikilvægu hlutverki að gegna í lífi iðkandans heldur einnig í velferð í samfélagi þjóðanna .
Eyjólfur Sturlaugsson. Þýðing á greininni "What is Judo? " á heimasíðu Alþjóðajúdosambandsins (IJF).